08 október 2007
Fyrsta eignin til sölu með viðhaldsbók!
Fyrsta eignin með viðhaldsbók á V3.is er komin á sölulistann. Eignin sem um ræðir er 128 m2, 4-ra herbergja íbúð í Núpalind 8 Kópavogi. Áhugasamir kaupendur geta skyggnst inn í viðhaldsbók eignarinnar með því að smella á tengilinn ,,skoða" Viðhaldsbók. Heiti fasteignasölu svo og símanúmer tengiliðar/eiganda er tilgreint fyrir þá sem vilja fá nánari upplýsingar eða mæla sér mót við seljanda til að skoða eignina. Sjá nánar á nýjustu eignir í sölu á sölulista Viðhaldsbókar hússins - V3.is.
03 október 2007
Vilt þú hafa áhrif á sölu eignarinnar þinnar?
Skráðu þig og stofnaðu viðhaldsbók fyrir eignina þína á http://www.v3.is/. Þú setur inn upplýsingar um eignina þína, t.d. mat þitt á ástandi eignarinnar og fleira. Tilvonandi kaupendur geta skoðað upplýsingarnar á netinu, á V3.is. Þú auglýsir þannig eign þína til sölu án nokkurs kostnaðar. Og með dýrmætum upplýsingum um eignina þína.Þú stjórnar því sjálfur hvaða upplýsingar þú vilt að birtist. Þú gefur upp nafn fasteignasölu og símanúmer sem tilvonandi kaupandi getur hringt í til að koma og skoða eignina ef við á.
Það sem þú þarft að gera er að "Nýskrá" þig á vef Viðhaldsbókar, setja eignina þína á eignalistann, velja atriði sem þú vilt fylla út fyrir þína eign og setja hana að lokum á sölulistann. Þú getur hvenær sem er bætt við og breytt upplýsingum um þína eign. Þú getur haft áhrif á sölu eignarinnar þinnar með því að gefa nákvæmar og aðgengilegar upplýsingar um hana. Auk þess birtist eignin þín á sölulista viðhaldsbókar þar sem kaupendur geta flett henni upp.
Þótt þú sért ekkert að hugsa um að setja eignina þína í sölu, geturðu stofnað viðhaldsbók fyrir hana og notað til að halda utan um allt viðhald sem þú stendur fyrir á eigninni þinni. Þú getur líka haldið utan um fagmenninan þína og hve ánægður þú ert með þá. Þú getur leitað að fagmanni sem aðrir notendur mæla með. Gjörðu svo vel að skrá þig á www.V3.is.27 september 2007
Nú getur kaupandi leitað að eign í viðhaldsbók

Notendur viðhaldsbókar halda utan um viðhaldið sitt á http://www.v3.is/. Ef þeir ákveða að selja eignina sína, geta þeir heimilað tilvonandi kaupendum að skyggnast inn í viðhaldsbók eignarinnar. Þeir setja einfaldlega eignina sína á sölulistann. Velja Mínar eignir og Sölulisti og fylla út atriðin sem boðið er upp á. Kaupendur geta séð hvaða eignir í viðhaldsbók eru komnar í sölu með því að velja tengilinn Ert þú að leita að eign á forsíðu http://www.v3.is/
31 ágúst 2007
Bætt við skráningaratriðum fyrir viðhaldsverk
27 ágúst 2007
Sænautasel, vel uppgerður gamall torfbær
V3 vaktin var á Norðurlandi í sumar. Á ferðalaginu var tjaldað í Sænautaseli á Jökuldalsheiði. Sænautasel var byggt árið 1843 um 530 m yfir sjávarmáli. Bærinn var í byggð til 1943. Sögu Sænautasels má lesa á síðunni http://nemendur.khi.is/svanbjar/torf/
Sænautasel er fallegur og skemmtilegur staður til að staldra við á og það borgar sig að taka á sig smá krók út af hringveginum. Boðið er upp á lummur og kaffi eða kakó. Í nágrenni Sænautasels eru miklir jökulruðningar sem kallaðir eru Grýlugarðar. V3 vaktin var 3 tíma að ganga þangað og til baka aftur. Myndirnar eru teknar af bænum í Sænautaseli og af Grýlugörðum.
Sænautasel er fallegur og skemmtilegur staður til að staldra við á og það borgar sig að taka á sig smá krók út af hringveginum. Boðið er upp á lummur og kaffi eða kakó. Í nágrenni Sænautasels eru miklir jökulruðningar sem kallaðir eru Grýlugarðar. V3 vaktin var 3 tíma að ganga þangað og til baka aftur. Myndirnar eru teknar af bænum í Sænautaseli og af Grýlugörðum.
Minnisbókin í viðhaldsbók hefur verið endurbætt


Minnisbókin í viðhaldsbók hefur verið endurbætt. Notandi getur skráð hjá sér minnisatriði sem hann og aðeins hann sér. Myndirnar sýna yfirlit yfir minnisatriðin og endurbætt skráningarform
Má bjóða þér að halda utan um viðhaldið þitt? Gjörðu svo vel að skrá þig endurgjaldslaust á http://www.v3.is/
Viðhaldsbók hússins þíns gerir þér kleift að halda utan um viðhald eignar og/eða húsfélags!
Má bjóða þér að halda utan um viðhaldið þitt? Gjörðu svo vel að skrá þig endurgjaldslaust á http://www.v3.is/
Viðhaldsbók hússins þíns gerir þér kleift að halda utan um viðhald eignar og/eða húsfélags!
22 ágúst 2007
Rafmagnstæki og húsgögn
Skráning og notkun er án endurgjalds.
Ef þú hefur ekki komið áður, velurðu ,,Nýskrá"annars ,,Innskrá".
http://www.v3.is/
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)


